Bankasamskipti
Bankaafstemming
Innheimtukröfur
Bankatenging og uppsetning
Bankatenging er grunnurinn að öllum bankasamskiptum í kerfinu. Hún tengir Business Central við netbankaþjónustu viðkomandi banka og geymir þau auðkenni sem þarf til þess að sækja yfirlit, senda greiðslur og afgreiða innheimtukröfur. Hver tenging er sjálfstæð og hægt er að setja upp eina tengingu fyrir hvern banka eða hvern reikning, eftir því sem við á.
Innlestur bankafærslna og sjálfvirk bókun
Innlestur bankafærslna er hluti af daglegri vinnu í bankasamskiptum. Kerfið sækir yfirlit beint úr banka og býður upp á að bóka færslurnar sjálfvirkt þegar þær falla að fyrirfram skilgreindum reglum. Þannig er hægt að lágmarka handavinnu og tryggja að bókhaldið endurspegli alltaf raunverulega stöðu bankareikninga.
Velja reikninga til kröfugerðar
Innheimtukröfur eru almennt stofnaðar á tvo vegu í kerfinu: sjálfvirkt þegar reikningur er bókaður og með Stofna á tímabil sem býr til kröfur fyrir alla viðskiptamenn með ákveðinn greiðsluhátt á völdu tímabili.