Innheimtukröfur
Innheimtukerfi nav.is má stilla þannig að það stofni innheimtukröfu í banka um leið og reikningur er bókaður, eða keyrsla er keyrð td. Um mánaðarmót, á alla útgefna reikninga á ákveðnu tímabili.
Vanalega er stofnaður greiðsluháttarkóti IK sem er skráður á viðskiptamann. Um leið og reikningur er bókaður á slíkan viðskiptamann þá stofnast innheimtukrafa. Kröfunúmer birtist svo á reikningi.
Farið er í Deildir / Bankasamskipti / Innheimtukröfur

Veljum aðgerðir / Stofna á tímabil. Þá opnast gluggi – stofna innheimtukröfur
|
Viðskiptamaður |
Ef aðeins á að stofna á stakan viðskiptamann |
|
Greiðsluháttur |
Ef aðeins á að stofna á hóp viðskiptamanna merkta með greiðsluhátt |
|
Dags. Frá |
Tímabil frá sem á að stofna fyrir |
|
Dags. Til |
Tímabil til sem á að stofna fyrir |
|
Gjalddagi/eindagi |
Gjalddagi / eindagi sem á að setja á kröfurnar. |
Smella á í lagi til að stofna. Að lokum er ýtt á senda í banka til þess að stofna kröfurnar í bankanum.
Fella má niður stakar kröfur með því að smella á fella niður kröfu. En þá er henni jafnframt fellt niður í bankanum.