Bankaafstemming
Grunnurinn að bankaafstemmingunni eru bein samskipti við bankann. Yfirlit er sótt beint úr bankanum með því að smella á Bankasamskipti.


Þá tengist kerfið í bankana skv. Uppsetningu og sækir inn öll reikningsyfirlit frá því þau voru sótt síðast. Einnig sækir kerfið yfirlit yfir ógreiddar kröfur (Landsbankinn) sem og allar greiddar innheimtukröfur ef sú eining er í notkun.
Síðan er farið í valliðinn bankaafstemming en þá opnast tvískiptur gluggi fyrir viðkomandi reikning

Vinstri listinn inniheldur færslur á bankareikningnum sem hafa verið bókaðar í DynamicsBC. Hægri listinn inniheldur færslur sóttar úr banka. Markmiðið er að báðir listar séu tómir en þá er allt afstemmt.
Aðgerðir
|
Jafna allt (sjálfvirkt) |
Reynir að jafna færslur sem eru til báðu megin á sömu dagsetningum (+/- 5 daga) með sömu fjárhæðir og sama tilvísun/kennitala eða mótreikningur báðu megin.
|
|
Jafna handvirkt
|
Ef meiri dags. Munur eru á færslum, þær færðar/bakfærðar öðru megin eða gerðar í mism. Mörgum færslum þá má jafna handvirkt. Færsla er merkt með F7 en þá sést lítil stjarna hægra megin. Af merkja með F7 aftur. Mótfærsla sem er með öfugu formerki í sama lista eða sama formerki í hinum listanum er merkt með F7. Jöfnun er svo bókuð með því að smella á takkann Bóka jöfnun. |
Hægt er að bóka færslur sem út af stendur beint úr bankayfirliti.

Þá er tegund reiknings (fjárhagur, viðskiptamaður, lánardrottin, bankareikningur) valinn reikningur nr. Valið úr lista og bókunartexti settur inn. Að lokum er ýtt á bóka færslur en þá flytjast færslur yfir í inngreiðslubók með tilheyrandi fylgiskjalsnúmer. Greiðslubókin er að lokum bókuð (sjá bókun færslubók).