Til baka í Bankasamskipti

Bankatenging og uppsetning

Bankatenging er grunnurinn að öllum bankasamskiptum í kerfinu. Hún tengir Business Central við netbankaþjónustu viðkomandi banka og geymir þau auðkenni sem þarf til þess að sækja yfirlit, senda greiðslur og afgreiða innheimtukröfur. Hver tenging er sjálfstæð og hægt er að setja upp eina tengingu fyrir hvern banka eða hvern reikning, eftir því sem við á.

5 mín lestur

Bankasamskiptagrunnur

Áður en einstakar bankatengingar eru stofnaðar þarf að ljúka almennri uppsetningu á síðunni Bankasamskiptagrunnur. Þar eru númeraraðir, sjálfgefnar bókhaldslyklar og verkröð (Job Queue) skilgreind sem öll bankasamskipti notast við.

  • Customer Reg.No. Field og Vendor Reg.No. Field – stilla hvar kennitala viðskiptamanns og lánardrottins er geymd í grunngögnum.
  • Create Claims – stýrir hvort kerfið býr sjálfkrafa til innheimtukröfur úr sölureikningum.
  • Verkröð virkLesa yfirlit og Lesa/bóka kröfur – kveikir á sjálfvirkri vinnslu og tengir hana við verkröð.
  • Númeraraðir – númeraraðir fyrir greiðslubunka, greiðsluskjöl og kortabunka.
  • Mismunabókun – mest leyfður mismunur, ástæðukóði og mótreikningur þegar kerfið jafnar færslur sjálfkrafa.
Athugið: Leyfi kerfisins kemur fram á þessari síðu undir Leyfi gildir til. Ef leyfið er útrunnið er hægt að uppfæra það með aðgerðinni Uppfæra leyfi.

Stofnun bankatengingar

Bankatengingar eru stofnaðar af síðunni Bankauppsetningalisti. Veljið Nýtt til þess að opna Bankatenging kortið og fyllið út eftirfarandi reiti.

Almennar upplýsingar

  • Bank – auðkenni tengingarinnar (t.d. nafn bankans). Notast er sem tilvísun á greiðslubunka og innheimtuskráningar.
  • Bank userid og Bank password – innskráningarupplýsingar í netbanka.
  • Description – frjáls texti til skýringar.
  • Communications – tegund samskipta við bankann.
  • Automatic importAutomatic balancing og Automatic posting – kveikt á sjálfvirkri innlesningu yfirlits, jöfnun og bókun.
  • Journal Template Name og Journal Batch Name – fjárhagsbók sem kerfið bókar inn í þegar færslur eru bókaðar sjálfvirkt.

Skírteini (certificate)

Sumir bankar krefjast PFX-skírteinis fyrir vélrænan aðgang. Smellið á aðgerðina Import certificate, veljið PFX-skrána og sláið inn lykilorð skírteinisins í reitnum Certificate Password. Þegar skírteinið hefur verið lesið inn fyllast Certificate serialno og Certificate Expiry Date sjálfkrafa. Fylgist með gildistíma skírteinisins og endurnýið það tímanlega.

Innheimtukerfi

Ef bankinn sér um milliinnheimtu eða innheimtu krafna er fyllt í Innheimtukerfi hópinn. Þar eru meðal annars eftirfarandi reitir:

  • KröfubankiKröfuhbKröfuþjónusta – upplýsingar um þjónustuaðila kröfusafns.
  • Greiðsluháttarkóði – sjálfgefinn greiðsluháttur fyrir kröfur stofnaðar í gegnum þessa tengingu.
  • Nr. Röð innheimtukrafna – númeraröð sem notuð er fyrir kröfur.
  • Innheimtugjald 1/2Vanskilagjald 1/2Dagar vanskil 1/2 – sjálfgefin gjöld og dagafjöldi í vanskilum.
  • Reikna vextiReikn, seðilgjaldReikn, vextirReikn, fjárm.sk – hvaða gjöldum kerfið bætir við sjálfvirkt.
  • Breyta eindaga ef helgi – færir eindaga á næsta virka dag ef hann lendir á helgi.

Kortagreiðslur

Ef bankatengingin er notuð fyrir uppgjör kortagreiðslna er hópurinn Kortagreiðslur útfylltur:

  • Payment Upload URL – endapunktur færsluhirðis.
  • Merchant ID og Processor ID – auðkenni söluaðila hjá færsluhirði.
  • Payment Test Flag – hakað þegar sent er í prufuumhverfi.
  • Card Paym. Batch No. Series – númeraröð fyrir kortagreiðslubunka.

Innskráning

Þegar reitirnir hafa verið fylltir er innskráning prófuð með aðgerðinni Innskráning efst á kortinu. Kerfið sendir innskráningarbeiðni á netbankann og staðfestir hvort tengingin virkar. Ef innskráning mistekst þarf að yfirfara notandanafn, lykilorð og skírteini.

Lykilorði breytt

Lykilorðum bankaaðganga er breytt með aðgerðinni Breyta lykilorði. Þar er nýtt lykilorð slegið inn og staðfest. Kerfið uppfærir lykilorðið í geymslu og notar það við næstu samskipti.

Afrita bankatengingu

Ef setja þarf upp aðra tengingu á svipuðum forsendum (t.d. fyrir annan reikning hjá sama banka) má nota aðgerðina DuplicateConnection. Hún afritar uppsetninguna og bætir undirstrikun framan við auðkennið svo hægt sé að breyta því.

Næstu skref

Þegar bankatengingin er virk er næsta skref að tengja hana við bankareikning í Business Central. Það er gert á Bankareikningauppsetning síðunni, þar sem hver bankareikningur er tengdur við viðeigandi bankatengingu. Eftir það er kerfið tilbúið til þess að sækja bankayfirlit, búa til greiðslubunka og afgreiða innheimtukröfur.