Til baka í Fjárhagur

Ítrekunarfærslubók

5 mín lestur

Ítrekunarfærslubók

 

Til þess að auðvelda skráningu á færslum sem eru ávallt eins, nema hvað að einungis dags. Og upphæð eru breytileg.  Til dæmis uppgjör kreditkorta með þóknun.  Þá förum við í inngreiðslubók (eða færslubók) og veljum ítrekunarfærslubók

Ítrekunarmáti – tegund endurtekningu á færslu

F Fastur

Upphæðin í færslubókinni stendur eftir bókun

B Breytilegur

Upphæðin í færslubókinni er eytt eftir bókun

S Staða

Upphæðin í færslubókinni er bókuð í hlutföllum sem skilgreind eru bak við línu í Úthlutanir.  Upphæð er eytt eftir bókun.

BF Bakfærsla fastur

Upphæðin í færslubókarlínunni helst eftir bókun og mótfærsla bókast næsta dag.

BB Bakfærsla breytilegur

Upphæðinni í færslubókarlínunni er eytt eftir bókun og mótfærsla bókast næsta dag.

BS Bakfærsla staða

Bókaða upphæðin á reikningnum í línunni deilist á reikningana sem eru tilgreindir fyrir línuna í töflunni Færslubók úthlutunar. Reikningsstaðan verður stillt á núll. Mótfærsla bókast næsta dag.

Helstu reitir í færslubók

Ítrekunartíðni

Dagsetningarútreikningur fyrir færslubók.  Td. 1V eða 1M þá uppfærist bókunardags eftir bókun.

 

Tegund fylgiskjals

Reikningur, greiðsla ofl.

Númer fylgiskjals

Skiptir ekki máli hér því kerfið úthlutar fylgiskjalsnúmer úr númeraröð færslubókar við bókun.

Tegund reiknings

Fjárhagur, Viðskiptamaður, Lánardrottin, Bankareikningur

Númer reiknings

Númer viðkomandi reiknings.

Upphæð

Fyllist út við bókun.

 

Þegar upphæð hefur verið skráð er bókin bókuð með því að smella á Bóka.

Hægt er að stofna margar ítrekunarfærslubækur fyrir mismunandi tegundir færslna.