Til baka í Fjárhagur

Greiðslubók

5 mín lestur

Bóka greiðslubók

 

Opnum liðinn inngreiðslubók

Hægt er að vera með margar greiðslubækur en sjálfgefið kemur uppsett með kerfinu.

Veljum greiðslubók og tvísmellum valda færslubók. Þá opnast eftirfarandi gluggi

Helstu svæði í greiðslubók eru:

Reitur

Lýsing

Bókunardags.

Bókunardags greiðslu

Tegund fylgiskjals

Greiðsla eða endurgreiðsla

Númer fylgiskjals

Fylgiskjalsnúmer kemur sjálfgefið ef númeraröð er skráð á færslubók (í fyrri glugga)

Tegund reiknings

Fjárhagur, Viðskiptamaður eða Lánardrottin eftir færslugerð

Reikningur númer

Númer reiknings (eða kennitala viðskm. / lánardr.)

Lýsing

Lýsing færslu

Upphæð

Upphæð greiðslu.  Ef tegund er viðskm. Þá er þetta kreditfærsla.

Tegund mótreiknings

Hægt er að skrá mótfærslu beint í greiðslubók td. Má þetta vera bankareikningur

Mótreikn. Nr

Reikningsnúmer mótreiknings td. Númer á bankareikningi

Jöfnunarnúmer

Hér má skrá (velja) númer á reikningi sem greiðsla á að jafna.

 

 

Skrá erlenda greiðslu

 

Ef unnið er með greiðslur í erlendri mynt þá gætum við þurft að kalla fram reitinn kóti gjaldmiðils (sjá stilla reiti í gluggum).  Skráning í greiðslubók er eins nema eftirfarandi ferli:

Í reitinn upphæð skráum við upphæðina í erlendri mynt.  Gjaldmiðilskóði kemur úr viðskiptamanni eða lánardrottni. Upphæð (SGM) er upphæð í ISK skv. Greiðslukvittun frá banka.  DynamicsBC sér þá um að skrá erlendu upphæðina á viðskiptamann og ISK upphæð í fjárhagsbókhaldið. 

 

Gengismunur

 

Með því að jafna færsluna við upprunalega reikninginn þá sér DynamicsBC einnig um að bóka gengishagnað eða gengistap eftir því hvort á við.  En þegar reikningur var upphaflega gefinn út í myntinni þá var færslan skráð á gengi sem þá var virkt.  Greiðslan verður líklega á öðru gengi ef einhver tími líður milli.