Til baka í Fjárhagur

Fjárhagsreikningar, skoða og stofna

5 mín lestur

Fjárhagslykil

 

Stofna fjárhagslykil


Förum í valliðinn Bókhaldslykill í valmynd

Ýtum svo á nýtt og þá opnast tómt spjald.  Áður en stofnað er þarf að ákveða hvar í bókhaldslyklinum viðkomandi lykill á heima þeas. rekstur / efnahagur og síðan finna laust númer.

Helstu svæði sem verða að vera út fyllt eru:

 

 

 

Reitur

Lýsing

Númer

Númer bókhaldslykils

Heiti

Heiti lykils

Rekstur/Efnahagur

Flokkun lykils í rekstrarreikninga og efnahagsreikninga

Debet/Kredit

Stýring hvort einungis megi færa debetfærslur, kreditfærslur eða bæði

Tegund reiknings

Stýring á gerð reiknings, möguleg gildi eru Reikningur, Frá-tala, Til-tala, Yfirskrift og Samtala

Bein bókun

Styring hvort leyfilegt er að bóka beint á lykil eða hvort bókun fari gegnum bókunarflokka, td. Safnreikningur viðskiptamanna

Alm. Bókunartegund

Stýrir hvort lykill leyfir bókun á öllu, sölu eða innkaupafærslum

Alm. Viðsk. Bókunarflokkur

Samsetning alm. Viðskiptabókunarflokks og alm. Vörubókunarflokks stýrir bókun

Alm. Vörubókunarflokkur

Samsetning alm. Viðskiptabókunarflokks og alm. Vörubókunarflokks stýrir bókun

Vsk. viðsk. Bókunarflokkur

Samsetning vsk. viðskiptabókunarflokks og vsk. vörubókunarflokks stýrir vsk. bókun

Vsk. vörubókunarflokkur

Samsetning vsk. viðskiptabókunarflokks og vsk. vörubókunarflokks stýrir vsk. bókun