Til baka í Fjárhagur

Almennir bókunarflokkar

5 mín lestur

Bókunarflokkar


Undir valmyndinni Deildir/Fjármálastjórnun/Uppsetning/Bókunarflokkar finnum við eftirfarandi bókunarflokka:

Sameiginlegt með alla bókunarflokka er að tengdir fjárhagslyklar séu merktir með beina bókun = nei þannig að aðeins kerfið geti bókað á þá.  Ef farið er að bóka handvirkt á þessa lykla flækir það afstemmingar.

Bókunarflokkar viðskiptamanna


Ef við veljum bókunarflokka viðskiptamanna þá opnast eftirfarandi gluggi

 

Það sem helst er notað er safnreikningur viðskiptamanna.  Þetta er vísun í efnahagslykil í fjárhagsbókhaldi fyrir viðskiptamannastöður.  Kerfið kemur vanalega tilbúið uppsett með Innlenda og Erlenda til að aðgreina í fjárhagsbókhaldi.

Bókunarflokkar lánardrottna


Ef við veljum bókunarflokka lánardrottna þá opnast eftirfarandi mynd

 

Það sem helst er notað er safnreikningur lánardrottna.  Þetta er vísun í efnahagslykil í fjárhagsbókhaldi fyrir lánardrottnastöður.  Kerfið kemur vanalega tilbúið uppsett með Innlenda og Erlenda til að aðgreina í fjárhagsbókhaldi.

 

 

Bókunarflokkar bankareikninga

 

Ef við veljum bókunarflokka bankareikninga þá opnast eftirfarandi mynd

Reiturinn fjárhagsreikningur banka er vísun í efnahagslykil í fjárhagsbókhaldi fyrir bankastöður.  Kerfið kemur vanalega tilbúið uppsett með B-ISK. Hér má einnig stofna bókunarflokka fyrir posa og mismunandi myntir

 

 

 

 

 

 

Alm. bókunarflokkar

 

Almennir bókunarflokkar eru notaðir til þess að stýra á hvaða tekju- eða gjaldalykla færslur bókast á við bókun á sölureikningum eða innkaupareikningum.  Þeir samanstanda af Almennum viðskiptabókunarflokkum sem tengjast Viðskiptamönnum, Lánardrottnum og bankareikningum og Almennum vörubókunarflokkum sem tengjast Vörum og Forðum.

Þannig að þegar viðskiptavinur í bókunarflokki INNLENDIR kaupir vöru í bókunarflokki VARA þá munu tekjur bókast á fjárhagslykil 1111.

Hér stofnum við Alm. Viðskiptabókunarflokka og Alm. Vörubókunarflokka

 

 

 



Þessir flokkar eru svo tengdir saman í Alm. Bókunargrunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

Og þar skilgreint hvaða tekjulykla og gjaldalykla þeir bóka inná.  Æskilegt er að loka fyrir beina bókun á þessa fjárhagslykla annars getur það gert afstemmingu síðarmeir erfiðari.

VSK. Bókunarflokkar

 

VSK. Bókunarflokkar eru notaðir til að stýra vsk.% og inn- og útskattslykla sem bókað er á.

VSK. viðskiptabókunarflokkurinn sem skráður er á viðskiptamanninn eða lánardrottinn versus VSK. vörubókunarflokkurinn ákveður hvort varan eða forðinn er í td. 11% eða 24% og á hvaða innskatts- og útskattsflokka.

Hér er grunnurinn að vsk.viðskipta og vsk.vörubókunarflokkum

  

 

 

 

Þetta er svo tengt saman í VSK-bókunargrunni til að búa til samsvarandi og matrissan að ofan:

 

 

 

 

 

 

Í grunninnum sem kemur frá nav.is er gert ráð fyrir sér utanumhald á vsk. fyrir Rekstur (Rx) og Vöruvelta (Vx)