Stofna vöru & vörusniðmát
Undir liðnum vörur og smellt á nýtt.

Helstu svæði í birgðaspjaldi
|
Flipi |
Reitur |
Lýsing |
|
Almennt |
Nr. |
Vörunúmer, getur verið hvaða númer sem er samsett af tölustöfum og bókstöfum. Einnig má setja upp hlaupandi númer. |
|
|
Lýsing |
Vörulýsing |
|
|
Grunnmælieining |
Grunnmælieining vöru, td. STK, M osf. Er fyrst stofnað í undirtöflu |
|
|
Birgðaviðvörun |
Ef kerfið á að koma með meldingar ef birgðastaða fer í - |
|
|
Koma í veg fyrir neikvæða birgðastöðu |
Ef kerfið á að stöðva birgðastöðu í -. |
|
Reikningsfærsla |
Ein.verð |
Einingaverð vöru án vsk. |
|
|
Alm. vörubókunarflokkur |
Vörubókunarflokkur (sjá bókunarflokka) |
|
|
Vsk. vörubókunarflokkur |
VSK. Vörubókunarflokkur (sjá bókunarflokka) |
|
|
Birgðabókunarflokkur |
Sjá bókunarflokka |
Auðvelda má stofnun vara með notkun á vörusniðmáti.
Vörusniðmát er aðferð til að fylla út ákveðna reiti og vinnuferli sem tryggir að ekki gleymist að fylla út ákveðna reiti.
Til að byrja er farið í setja upp vörusniðmát (finna í leitinni eftir „vörusniðmát“).

Hér stofnum við nýtt sniðmát með því að smella á Nýtt.

Helstu svæði í spjaldi
|
Flipi |
Reitur |
Lýsing |
|
Almennt |
Kóti |
Auðkenni sniðmáts td. VARA |
|
|
Lýsing |
Lýsing á sniðmáti |
|
|
Kenni töflu |
Er alltaf 27 fyrir |
|
Línur |
Tegund |
Svæði fyrir útfyllingu á reit í skrá |
|
|
Heiti reits |
Heiti reits valið úr lista |
|
|
Sjálfgefið gildi |
Gildi sem á að setja í svæðið |
|
|
Sleppa tengi |
Ef verið er að setja inn gildi td. Kóti yfirflokks sem er ekki til í gagnagrunninum (ennþá) má setja hak í hér en þá fær maður ekki villu á að gildið sé ekki til. Það verður þó að passa að stofna viðkomandi gildi í undirtöflunni áður en farið er að nota sniðmátið. |
Dæmi um línur eru:
|
Tegund |
Heiti reits |
Texti reits |
Sjálfgefið gildi |
|
Svæði |
Base Unit of Measure |
Grunnmælieining |
STK |
|
Svæði |
Inventory Posting Group |
Birgðabókunarflokkur |
VARA |
|
Svæði |
Gen. Prod. Posting Group |
Alm. Vörubókunarflokkur |
VA1 |
|
Svæði |
VAT Prod. Posting Group |
VSK vörubókunarflokkur |
V3 |
|
Svæði |
Stockout Warning |
Birgðaviðvörun |
Nei |
Athuga að gildin sem eru nefnd sem dæmi hér að ofan þarf að staðfæra að gildum í kerfinu hjá notandanum.
Þegar ný vara er stofnuð (í birgðaspjaldi) þá er ýtt á Nota sniðmát. Þá opnast gluggi með lista yfir mögulegum vörusniðmátum. Rétta sniðmátið er valið og reitir fyllast út skv. Sniðmáti.