Til baka í Birgðir

Birgðageymslur

5 mín lestur

Afhendingartími (Birgðastaða og væntanlegt)

 

Í birgðaspjaldi eru reitir til þess að tengja vöru við lánardrottin.  Þetta flýtir gerð innkaupapantana

Flipi

Reitur

Lýsing

Áætlun

Áfyllingarkerfi

Aðferð við áfyllingar.  Oftast Innkaup (eða samsetning ef um uppskrift er að ræða

 

Útreikn. Afhendingartíma

Dags. Reikniregla td. 7D fyrir 7 daga eða 2V+5D fyrir 2 vikur og 5 daga.

 

Nr. Lánardrottins

Númer lánardrottins – valið úr lista lánardrottna – verður að vera til.

 

Vörunr. Lánardr.

Vörunúmer lánardrottins sem viðkomandi gefur upp.

 

Þegar vara er pöntuð hjá lánardrottni þá reiknar kerfið sjálfkrafa væntanlegan afhendingar tíma.
Birgðaspjaldið og etv. birgðalistin sýna þá birgðastöðu, magn í innkaupapöntun og í sölupöntun:

 

 

 

Hægt er að smella á magn í innk. Pöntun til að sjá hvaða pantanir eru væntanlega og hvenær varan er væntanleg í hús

 

 

 

Birgðageymslur

 

Kerfið getur haldið utan um lagerstöðu í mismunandi birgðageymslum.

Byrjum á að fara í leit og finna birgðageymslur.

Hér setjum við upp birgðageymslurnar. Hægt er að stofna nýja með aðgerðinni nýtt.

Svæði sem skipta máli eru:

Flipi

Reitur

Lýsing

Almennt

Kóti

Auðkenni birgðageymslu

 

Heiti

Lýsing á birgðageymslu

 

Síðan þarf að tryggja að svæðið birgðageymsla sé virkt í sölukerfi, innkaupakerfi og birgðabókum svo hægt sé að skrá vörur á viðkomandi birgðageymslu.