Til baka í Birgðir

Birgðabók & raunbirgðabók

Notað til að leiðrétta birgðir og framkvæma talningu

5 mín lestur

Birgðabókin í DynamicsBC er hugsuð til að gera birgðaleiðréttingar eða aukningar

Við förum í valmyndarliðinn birgðabækur þá opnast eftirfarandi gluggi

 

Þar veljum við birgðabók og smellum á breyta færslubók.  Hægt er að vera með margar birgðabækur í gangi á sama tíma.  Sjálfgefið kemur uppsett með kerfinu.

Helstu svæði í greiðslubók eru:

Reitur

Lýsing

Bókunardags

Bókunardags birgðafærslu

Tegund færslu

Tegund færslu (Aukning, minnkun eða Innkaup og sala)

Númer fylgiskjals

Kemur útfyllt ef númeraröð er skráð á birgðabók í fyrri glugga

Vörunúmer

Hér veljum við vörunúmer sem er verið að breyta

Lýsing

Lýsing á færslu

Magn

Magn sem er verið að auka um eða minnka um.  Ekki þarf að tilgreina – ef minnkun er að ræða.

Ein.upphæð

Einingaverð vöru sem er verið að breyta.

Upphæð

Heildarverð vöru sem er verið að breyta.

Kostn.verð

Kostnaðarverð á vöru sem er verið að breyta.

 

Þegar allar færslur hafa verið skráðar er smellt á bóka.  Þá bókast birgðabókin og birgðastöður uppfærast.

 

 

Raunbirgðabók (talning)


Förum í valliðinn raunbirgðabók


Raunbirgðabók er svipuð og birgðabók nema hvað að keyrslan reikna birgðir er keyrð fyrst.

Hér veljum við bókunardags. Talningar.  Númer fylgiskjals kemur út fyllt ef númeraröð er skráð á raunbirgðabók.  Val er um að taka með vörur sem eru ekki með birgðastöðu og/eða vörur sem ekki hafa neinar hreyfingar.

Þá sækir keyrslan allar vörur inní raunbirgðabók skv. Vali.  Farið er í dálkinn magn (raunbirgðir) og talið magn er slegið inn.  Þá reiknar kerfið mismunafærslu og verðmæti uppfærist til samræmis.

Hægt er að prenta út talningalista með því að smella á takkan Prenta.

Þegar talning hefur verið sett inn þá má smella á Bóka til þess að bóka raunbirgðabók og uppfæra birgðastöður.