Til baka í BC/Klukka

Uppsetning BC/Clock

BC/Clock er Business Central viðbót sem flytur stimplun starfsmanna inn í Business Central, reiknar dagvinnu og yfirvinnu samkvæmt skilgreindum reglum og flytur niðurstöðuna yfir í navPAY. Áður en byrjað er að keyra launakeyrslur þarf að setja upp grunntenginguna og helstu reglurnar. Allt fer fram á einni síðu: BCKlukka uppsetning → Time Clock.

5 mín lestur

Skref 1: Tengja við Workclock

BC/Clock tengist Vefhluta-vefþjónustunni þaðan sem stimplun starfsmanna kemur. Þú þarft slóðina, lykilinn og einkenniskóða fyrirtækisins.

  1. Opnaðu BCKlukka uppsetning → Time Clock.
  2. Undir API Setup skaltu fylla inn:
    • API URL — slóð Workclock-vefþjónustunnar.
    • API Key — leyndur lykill fyrir auðkenningu.
    • Company Code — einkenniskóði þessa fyrirtækis í vefþjónustunni.

Þetta er einu sinni; gildin haldast.

Skref 2: Velja númeraröð fyrir launakeyrslur

Hverri launakeyrslu er gefið númer úr númeraröð (t.d. LK26-0001LK26-0002, ...). Aðferðin er sú sama og notuð er fyrir aðra númeraraðir í BC.

  1. Búðu til númeraröð í No. Series ef hún er ekki þegar til (t.d. LK-BCKLUKKA).
  2. Á uppsetningarsíðunni, undir Numbering, veldu þá röð í reitnum Batch Nos. með uppflettiörinni.

Skref 3: Stilla launatímabilið

Launatímabilið ræðst af þeim degi sem það byrjar á. Ef það byrjar á 1. dag mánaðar er um almanaksmánuð að ræða. Ef það byrjar t.d. á 27. dag, er tímabilið frá 27. eins mánaðar til 26. þess næsta.

  1. Undir Numbering, fylltu inn Payroll Period Start Day.
  2. Setjið 1 fyrir almanaksmánuð, eða viðeigandi mánaðardag (1–28) fyrir önnur tímabil.

Þegar þú stofnar nýja launakeyrslu eftir þetta fyllir kerfið dagsetningarnar út sjálfkrafa eftir þessari stillingu.

Skref 4: Stilla matarhlé og helgar

BC/Clock dregur ógreitt matarhlé frá vinnutíma þegar vakt skarast við matarhléið. Þetta er valfrjálst en hentar flestum.

  1. Undir Lunch Break:
    • Hakaðu í Use Lunch Break.
    • Lunch Break Start = 12:00 og Lunch Break End = 13:00 eru sjálfgefin gildi.
    • Settu Weekend Lunch Min Hours = 7 ef þú vilt að stuttar helgarvaktir (undir 7 klst.) sleppi matarhléinu.
  2. Undir Weekend Settings:
    • Tilgreindu hvort laugardagar og sunnudagar séu helgar (Saturday Is WeekendSunday Is Weekend).
    • Hakaðu í Round Weekend Hours to 0.25 h ef þú vilt námunda helgartíma upp að næstu 15 mínútum (eins og Stólpi gerir).

Skref 5: Búa til sjálfgefnar tímategundir

Hver tímategund (dagvinna, yfirvinna, veikindi o.fl.) tengist launalið í navPAY með kóða (104, 106, 902, 903 og fl.). Hægt er að búa til sjálfgefið sett í einu skrefi.

  1. Smelltu á aðgerðina Create Default Hour Types.
  2. Sjálfgefnar tegundir verða til: DAGVINNAYFIRVINNANÆTURVINNAHELGIVEIKINDIORLOF o.fl. Hver tegund er sjálfkrafa tengd réttum navPAY-launalið.

Sjá nánar í greininni Tímategundir og tenging við navPAY-launaliði.

Skref 6: Tengja tímategundir við reglurnar

Hver vinnuregla (dagvinna, dagleg yfirvinna, vikuleg yfirvinna, næturvinna, eftirvinna, helgar, frídagar, fjarvistir) þarf að benda á tímategund. Þannig veit kerfið hvaða launalið hver klukkustund á að fara á.

  1. Á uppsetningarsíðunni, fylltu inn tímategundirnar fyrir hverja reglu sem þú notar (t.d. Daytime Hour TypeDaily OT Hour TypeWeekend Hour Type).
  2. Smelltu á uppflettiörina til að velja úr listanum.
  3. Stilltu þrep og takmörk (t.d. Normal Hours Per Day = 8 klst., Weekly Hours Limit = 40).

Skref 7: Sjálfgefið netfang fyrir skýrslur

Þegar bókari sendir tímafærsluskýrslu er móttakandi fyrirframfylltur úr þessari stillingu. Hægt er að breyta í glugganum áður en sent er.

  1. Undir Numbering, fylltu inn Default Report Email (t.d. stjornandi@fyrirtaeki.is).

Næstu skref

Þegar uppsetningin er klár:

  • Sækja starfsmenn úr navPAY (Sækja úr launakerfi (navPAY)) — sjá greinina Að sækja starfsmenn úr navPAY.
  • Stofna stimpilklukku-skráningu í Workclock (Siggi sér um þetta).
  • Búa til Job Queue til að sækja stimplun sjálfvirkt — Create Sync Job Queue Entry aðgerðin gerir þetta í einu skref